Við erum Mental
Mental sýn
Með Mental vinna fyrirtæki að því að setja fólk og líðan þess í fyrsta sæti. Við vinnum fyrir fólk og fyrirtæki í að skapa og næra stefnumótandi og sjálfbæra menningu sem eflir geðheilsu á vinnustöðum.
Við vinnum að heildstæðri nálgun með áherslu á geðheilbrigði – við trúum ekki á plástra og skyndilausnir
Við vinnum með aðferðir sem studdar eru með rannsóknum og vísun í alþjóðlega viðurkenndar aðferðir
Við kunnum okkar fag. Reynsla okkar í rekstri, stjórnun og ráðgjöf ásamt fagmenntun skilar okkur og þér langt
Við þekkjum fólk og leggjum mikið upp úr því að virkja og styðja sterkt og víðtækt tengslanet þar sem Mental hefur áhrif og verður fyrir áhrifum af öðrum
Við erum skemmtileg og lífleg og nálgumst fólk og verkefnin af hlýju og virðingu. Það er gaman að vinna með okkur
Við förum ótroðnar slóðir og þorum að vera öðruvísi. Við viljum breyta. Við ætlum okkur að breyta!
Mental teymið
Helena Jónsdóttir
Helena Jónsdóttir er stofnandi og framkvæmdastjóri Mental. Hún er klínískur sálfræðingur með áralanga reynslu sem slíkur.
Í störfum sínum undanfarin 25 ár hefur Helena öðlast víðtæka reynslu á ólíkum sviðum rekstrar, stjórnunar og nýsköpunar. Hún hefur borið ábyrgð á því að setja ný verkefni á laggirnar, stýrt stórum sem smáum nýsköpunar- og þróunarverkefnum, unnið að umbreytingu á menningu og starfsháttum í fyrirtækjum, stýrt mannmörgum sölu- og þjónustudeildum, unnið sem framkvæmdastjóri sálfræðiþjónustu með fólki frá ólíkum menningarheimum, stjórnað móttöku fyrir sálfræðiþjónustu í flóttamannabúðum í miðjum frumskógi og komið sem ráðgjafi að vinnu í tugum fyrirtækja í ólíkum greinum. Svo var hún skólastýra í eitt ár. Eitthvað sem hana dreymdi aldrei um að hún þyrði, vildi eða gæti.
Hilja Guðmunds
Hilja er ráðgjafi Mental og sérfræðingur okkar í mannauðsstjórnun. Hún býr yfir meistaragráðu í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði sem og kennslufræði.
Í störfum sínum undanfarin 15 ár hefur Hilja öðlast víðtæka reynslu á fjölbreyttum sviðum. Hún á að baki áralanga reynslu sem fyrirlesari og ráðgjafi er varðar samskipti, mörk og forvarnir, er höfundur að kennsluefni hjá Menntamálastofnun, skipulagt og stýrt menningar- og æskulýðsviðburðum, sinnt formennsku í félögum eða deildum og starfaði sem kennari í fjölda ára.
Sveitastúlkan Hilja hefur einlægan áhuga á samskiptum, samskiptamynstrum, áhrif menningar og uppruna á bæði samskipti og upplifun.
Þetta byrjaði allt með stofnandanum og hennar fjölbreytta og óhefðbundna starfsferli.
Helena Jónsdóttir er klínískur sálfræðingur með áralanga reynslu í rekstri og ráðgjöf. Auk þess að veita sálfræðiþjónustu um árabil hefur Helena stýrt geðheilbrigðismálum víða í Mið-Austurlöndum og Afríku, starfað við rannsóknir, ráðgjöf og verkefnastjórnun og verið framkvæmdastjóri í fjármálafyrirtæki. Helena er einn af stofnendum og fyrsti skólastjóri Lýðskólans á Flateyri.
Þessi fjölbreytta reynsla hefur leitt hana að því að helga sig geðheilbrigði á vinnustöðum með stofnun Mental. Þar kemur þetta allt saman: traust fræðileg undirstaða, kraftur og hlýja og vilji til að fara ótroðnar slóðir til að ná háleitum markmiðum:
- Að gjörbylta því hvernig við tölum um og tökumst á við geðheilsu á vinnustöðum
- Að fyrirtæki setji starfsfólkið og geðheilsu þess í fyrsta sæti
- Að fyrirtæki hafi skýra sýn í geðheilbrigðismálum á vinnustöðum
Með stofnun og rekstri Mental mun Helena virkja víðtækan bakgrunn sinn og ástríðu fyrir málefninu til að vinna með fyrirtækjum og stofnunum að því að verða hluti af lausninni í aðsteðjandi geðheilbrigðisvanda og laða fram alvöru breytingar.
Uppruni Mental
- Við vinnum að því að gjörbylta því hvernig við tölum um og tökumst á við geðheilsu á vinnustöðum
- Við vinnum að því að fyrirtæki og stjórnendur setji starfsfólkið og geðheilsu þess í fyrsta sæti
- Við aðstoðum fyrirtæki við að afla sér upplýsinga um ýmsa þá þætti í vinnufyrirkomulagi, menningu og stjórnun sem líklegir eru til að hafa áhrif á geðheilbrigði, frammistöðu og árangur fyrirtækisins
- Við vinnum með fyrirtækjum að því að þau setji sér geðheilsustefnu sem byggir á haldgóðum upplýsingum og samvinnu við starfsfólk
- Við vinnum með fyrirtækjum að þau setji fram áætlun um aðgerðir og tryggja áhrifaríkar leiðir til að styðja við geðheilbrigði og vellíðan starfsfólks
- Við þjálfum og fræðum stjórnendur og styðjum þá í að bera kennsl á, bregðast við og viðhalda geðheilbrigði síns starfsfólks
- Við tökum þátt í og hvetjum til umræðu á opinberum vettvangi um geðheilbrigði á vinnustöðum
Mental markmið
Vitnisburður ánægðra viðskiptavina
Við erum að rifna úr stolti að fá að vinna með þessum framsæknu fyrirtækjum sem ryðja brautina í átt að geðheilbrigðari vinnustað