Gulur september: Við berum öll ábyrgð á að stíga inn
Aug 12
/
Helena Jónsdóttir
Við þekkjum þetta flest.
Samstarfsfélagi sem áður var hlýr, hjálpsamur og virkur í hópnum verður skyndilega þögulli. Hvassari. Óþolinmóðari. Dregur sig í hlé og hættir að mæta í kaffið. Við tökum eftir breytingunni.
En áður en langt um líður er fólk kannski farið að kvarta undan viðkomandi, forðast samskipti og ræða málið sín á milli.
„Það er ekkert hægt að segja við hana.“
„Best að láta hana bara eiga sig.“
Smám saman verður hegðunin sem við tókum eftir að lýsingu á manneskjunni sjálfri. Hún er ekki lengur samstarfsfélagi sem hefur breyst. Hún er orðin „erfið manneskja“. Einhver sem við tölum um.
En enginn hefur talað við hana.
Hvað ef við myndum staldra við áður en við dæmum og spyrja:
Hvað gæti verið að gerast hjá þessari manneskju? Er þessi hegðun ekki ólík henni?
Samtalið sem við tökum ekki hverfur ekki
Breytingar á líðan geta birst í samskiptum áður en fólk segir frá því að eitthvað sé að. Manneskja dregur sig í hlé, verður viðkvæmari eða hvassari, missir einbeitingu eða tekur minni þátt en áður.
Við þurfum ekki að vita hvað er að og við eigum ekki að greina samstarfsfólk okkar. En við getum tamið okkukr að taka eftir því að eitthvað hafi breyst.
En svo veigrum við okkur oft við að spyrja. Við viljum ekki særa, vera afskiptasöm eða gera málið stærra. Kannski óttumst við viðbrögðin eða finnum ekki réttu orðin.
Þess vegna bíðum við.
En samtalið sem við tökum ekki hverfur ekki. Það heldur oft áfram, bara án manneskjunnar sem það snýst um. Við förum að tala UM manneskjuna við aðra en tölum ekki við hana. Þorum ekki að eiga það samtal.
„Mér finnst þú ekki alveg eins og þú átt að þér að vera. Hvernig hefurðu það?"
Hugrakkt samtal þarf hvorki að vera stórt né fullkomið. Ein einföld setning getur skipt öllur máli. Við þurfum ekki að vera sérfræðingar til að tékka inn hjá samstarfsfólki okkar. Við þurfum fyrst og fremst að vera tilbúin að taka eftir, spyrja og hlusta.
En athugum eitt líka. Að sýna umhyggju þýðir ekki að við eigum að samþykkja meiðandi framkomu. Við þurfum líka að geta spurt um líðan um leið og við setjum mörk:
„Hvað er að gerast hjá þér?“
og jafnframt sagt:
„Þessi framkoma er ekki í lagi.“
Umhyggja og skýr mörk geta nefnilega farið ákaflega vel saman.
Ný gagnvirk fræðsla frá Mental í Gulum september
Í tilefni af Gulum september bjóðum við hjá Mental upp á nýtt samtal fyrir vinnustaði af öllum stærðum og gerðum:
Við berum öll ábyrgð á að stíga inn
Samskipti, geðheilsa og hugrökk samtöl á vinnustað
Þetta er ekki hefðbundið fræðsluerindi. Þátttakendur fá tækifæri til að staldra við, skoða eigin viðbrögð og ræða raunverulegar aðstæður sem geta komið upp á vinnustað.
Samtalið tekur um 50 mínútur og byggir á raunverulegum dæmum, þátttöku starfsfólks, ígrundun og stuttum umræðum.
Samtalið er ætlað ÖLLU starfsfólki og hentar yfir morgunkaffinu, í hádeginu, í lok vinnudags eða sem hluti af starfsdegi. Samtalið getur farið fram á vinnustaðnum eða í streymi með aðlagaðri uppsetningu. Einnig er hægt að taka það upp og veita starfsfólki tímabundinn aðgang.
Markmiðið er ekki aðeins að veita fræðslu heldur að hefja samtal sem heldur áfram að okkar aðkomu lokinni.
Viltu nýta Gulan september til að hefja þetta samtal inni á þínum vinnustað?
Enginn vinnustaður er of lítill eða of stór til að fá þessa fræðslu og eiga þetta samtal. Að auki er mögulegt að óska eftir að erindið sé flutt á ensku.
Hægt er að hafa samband eða bóka fund með okkur með eftirfarandi leiðum:
Hægt er að hafa samband eða bóka fund með okkur með eftirfarandi leiðum:
mental@mentalradgjof.is
661 7808
Einnig má fylla út formið hér að neðan og við ráðgjafi hefur samband við þig við fyrsta tækifæri.

Kt. 460308-0620
Sími: 661-7808
Kuggavogur 3, 104 Reykjavík
mental@mentalradgjof.is
Upplýsingar
Copyright © 2025