Stjórnendahandleiðsla

Stjórnendahandleiðsla Mental er fyrir stjórnendur á öllum stigum og er til þess fallinn að styðja enn frekar við stjórnendur í starfi sínu.

Handleiðslan er fyrir stjórnendur sem vilja:
  • auka við almenna stjórnendahæfni
  • efla færni sína í að takast á við erfiða/krefjandi hegðun
  • fá leiðsögn í starfi
  • spegla vanda/áskoranir með sérfræðingi/ráðgjafa
  • Fyrir hverja: Stjórnendur
  • Heildartími:  50 mín 
  • Ráðgjafar: Helena Jónsdóttir & Hilja Guðmundsdóttir

Stjórnendahandleiðsla 

Að vera stjórnandi felur reglulega í sér að þurfa að takast á við aðstæður þar sem ekkert eitt rétt svar liggur fyrir.

Erfitt samtal. Samskipti sem eru farin að flækjast. Starfsmaður sem þú hefur áhyggjur af. Hegðun sem þú veist að þú þarft að stíga inn í. Mörk sem þarf að setja. Eða einfaldlega aðstæður þar sem gott væri að fá annað faglegt sjónarhorn áður en næsta skref er tekið.

Stjórnendahandleiðsla Mental er faglegt rými þar sem stjórnandinn kemur með raunverulegar aðstæður úr starfinu og fær aðstoð við að átta sig á þeim, undirbúa viðbrögð og finna næstu skref.
Write your awesome label here.

Nálgun Mental í stjórnendahandleiðslu

- 01

Vinnum með raunveruleika stjórnandans

Stjórnandinn þarf ekki að koma með fullmótað „vandamál“. Hann getur komið með samtal sem hann kvíðir fyrir, starfsmannamál sem hann er óviss um, samskiptavanda, mörk sem þarf að setja eða einfaldlega tilfinninguna um að hann viti ekki alveg hvernig best sé að stíga inn.
- 02

Við gefum rými til ígrundunar

Það er rými til ígrundunar, en nálgunin er jafnframt hagnýt og aðgerðamiðuð. Markmiðið er að stjórnandinn fari út með meiri skýrleika, öryggi og hugmynd um hvað hann ætlar að gera næst. 
- 03

Manneskjan & stjórnandinn

Það er hægt að sýna starfsfólki skilning og samkennd án þess að stjórnandinn víki sér undan ábyrgð sinni. Skýr mörk, hreinskilin samskipti og snemmbær inngrip af hendi stjórnandans sem jafnframt gætir að eigin velferð og mörkum. 
- 04

Stígum inn strax

Forvarnir og snemmbær stuðningur er ein af helstu áherslum okkar hjá Mental ráðgjöf. Handleiðslan getur þannig verið bæði fyrir stjórannda sem stendur í erfiðu máli núna og þann sem vill verða öruggari í að grípa fyrr inn í og beita forvarnargefandi aðgerðum. 

Rými til að staldra við, spegla og undirbúa næstu skref

Við leggjum áherslu á mannlega nálgun án þess að missa sjónar á ábyrgð stjórnandans. Stundum þarf að hlusta. Stundum þarf að setja mörk. Stundum þarf að taka erfiða samtalið. Og stundum þarf stjórnandinn sjálfur einfaldlega rými til að hugsa upphátt með einhverjum sem þekkir þessar aðstæður.

Markmiðið er ekki að segja þér hvernig þú eigir að stjórna.
Markmiðið er að þú sért öruggari í því hvernig þú velur að stjórna.

Ráðgjafar í handleiðslu

Write your awesome label here.
Helena Jónsdóttir
Helena er klínískur sálfræðingur í grunninn. Hún hefur starfað í Læknum án landamæra, sinnt framkvæmdastjórahlutverki hjá Kaupþingi og er hokin af reynslu.

Krefjandi samskipti og hegðun, áföll, geðheilbrigði á vinnustað og stuðningur við starfsfólk í vanda er hennar sérsvið.
Write your awesome label here.
Hilja Guðmundsdóttir
Hilja er sérfræðingur okkar í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði. 

Erfið samtöl, samskipti, menningar- og kynslóðanæmni/ skilningur, viðverustjórnun og erfið/krefjandi hegðun er hennar sérsvið.