Trúnaðarmaðurinn í nútíma vinnuumhverfi
Þessi námslína er hönnuð til að efla trúnaðarmenn í hlutverki sínu með hagnýtri fræðslu, skýrum verkfærum og raunhæfum dæmum. Áhersla er lögð á hlutverk og mörk trúnaðarmanna, viðkvæm samtöl, fyrstu viðbrögð, sálræna fyrstu hjálp á vinnustað, samskipti og sálfélagslegt öryggi á vinnustað.
Fyrirkomulag námslínu
Námslínan er byggð upp sem blandað nám. Hún hefst með staðbundinni vinnustofu og henni fylgja tvær rafrænar námslotur sem unnar eru á eigin hraða.
Á milli námslotanna hittast þátttakendur á sameiginlegum Teams-fundi þar sem farið er yfir reynslu og spurningar sem hafa vaknað. Að lokum vinna þátttakendur lokaverkefni sem er kynnt og rætt á sameiginlegum lokafundi.
Staðbundin lota - 15. október
Námslína hefst.Rafræn námslína opnar 15. október.
Í kjölfarið hefja trúnaðarmenn nám og vinnu við Hluta 1
Í kjölfarið hefja trúnaðarmenn nám og vinnu við Hluta 1
Miðjufundur - 8. desember kl. 08:30
Á fundinum rifjum við upp helstu áherslur fyrri hluta námslínunnar, vinnum með raunveruleg dæmi og gefum ykkur tækifæri til að deila reynslu, spyrja spurninga og læra hvert af öðru.
Hluti 2 opnar 10. janúar
Opnað verður fyrir hluta 2 í janúar og trúnaðarmenn hefja nám og vinnu við síðari hluta.
Lokaverkefni hefst 20. mars þar sem unnið er í hópum.
Lokaverkefni hefst 20. mars þar sem unnið er í hópum.
Staðbundinn lokafundur - 8. apríl
(tímasetning auglýst síðar)
Kynning á lokaverkefnum, samantekt og lærdómur námskeiðsins og næstu skref í hlutverkinu.
