Vinir í eyðimörk
Hugmyndin byggir á þeirri sýn að í krefjandi starfi eigi fólk ekki að þurfa að ferðast eitt. Við þurfum samstarfsfólk sem tekur eftir, spyr, hlustar og getur hjálpað okkur að staldra við þegar mikið er að gera. Á sama tíma þarf að vera skýrt að jafningjastuðningur felur ekki í sér að samstarfsfólk beri ábyrgð hvert á líðan annars eða taki að sér hlutverk sem tilheyra stjórnendum eða fagfólki.
Fyrirkomulag námslínu
Námslínan er byggð upp sem blandað nám. Hún hefst með staðbundnum fundi og bæði rafrænar lotur og staðfundir.
Staðfundur 1 : 28. október '26
Leggjum grunninn að verkefninu og skoðum hvað hefur áhrif á hvernig við mætum hvert öðru?
Rafrænar lotur : 1 og 2
Samskipti og geðheilbrigði á vinnustað (opnar 2. nóvember)
Sálræn fyrsta hjálp (opnar 25. nóvember)
Sálræn fyrsta hjálp (opnar 25. nóvember)
Staðfundur 2 : 4. janúar '27
Unnið verður áfram með það efni sem þegar hefur verið unnið með með áherslu á Umhyggju, mörk og samskipti í daglegu starfi
Rafrænar lotur : 3 og 4
Mörk, sjálfstraust og samskipti (opnar 11. janúar)
Að stíga inn í hugrekkið (opnar 10. febrúar)
Að stíga inn í hugrekkið (opnar 10. febrúar)
Staðfundur 3 : 14. apríl '27
Unnið verður með þau sameiginlegu viðmið sem við viljum viðhafa í starfi okkar og samskiptum undir yfirheitinu Samskipti, stuðningur og mörk sem framtíðar "músík".
