Stjórnendahandleiðsla 

Að vera stjórnandi felur reglulega í sér að þurfa að takast á við aðstæður þar sem ekkert eitt rétt svar liggur fyrir.

Erfitt samtal. Samskipti sem eru farin að flækjast. Starfsmaður sem þú hefur áhyggjur af. Hegðun sem þú veist að þú þarft að stíga inn í. Mörk sem þarf að setja. Eða einfaldlega aðstæður þar sem gott væri að fá annað faglegt sjónarhorn áður en næsta skref er tekið.

Stjórnendahandleiðsla Mental er faglegt rými þar sem stjórnandinn kemur með raunverulegar aðstæður úr starfinu og fær aðstoð við að átta sig á þeim, undirbúa viðbrögð og finna næstu skref.
Write your awesome label here.

Mannauðsdagstilboð

Fjögur samtöl - Rými fyrir þig sem stjórnanda - Á verði þriggja

4 handleiðslur á verði 3

Venjulegt verð er 36.500 kr. fyrir hverja handleiðslu en í gegnum tilboð Mannauðsdagsins greiðir þú 27.375 kr fyrir hvert skipti. 

Einnig er hægt að greiða fyrir öll skiptin með einni greiðslu í upphafi. 

Hvernig fer greiðsla fram?

Tilboðið getur verið greitt af einstaklingi eða vinnustað. 

Hægt er að greiða hverja handleiðslu fyrir sig (27.375 kr eftir hvert skipti) eða allar í einni greiðslu áður en handleiðslur fara fram. 

Helstu upplýsingar

Hver handleiðsla er 50 mínútur og getur farið fram með rafrænum hætti í gegnum Teams eða í samtalsrými Mental ráðgjafar. 

Þá er einnig mögulegt að vera með blöndu af Teams og samtalsrými. 

Hvernig nýti ég tilboðið?

Bóka þarf fyrstu handleiðsluna fyrir 15. nóvember 2026 og nýta þarf alla fjóra tímana innan árs frá fyrstu bókun. 

Nálgun Mental í stjórnendahandleiðslu

- 01

Vinnum með raunveruleika stjórnandans

Stjórnandinn þarf ekki að koma með fullmótað „vandamál“. Hann getur komið með samtal sem hann kvíðir fyrir, starfsmannamál sem hann er óviss um, samskiptavanda, mörk sem þarf að setja eða einfaldlega tilfinninguna um að hann viti ekki alveg hvernig best sé að stíga inn.
- 02

Við gefum rými til ígrundunar

Það er rými til ígrundunar, en nálgunin er jafnframt hagnýt og aðgerðamiðuð. Markmiðið er að stjórnandinn fari út með meiri skýrleika, öryggi og hugmynd um hvað hann ætlar að gera næst. 
- 03

Manneskjan & stjórnandinn

Það er hægt að sýna starfsfólki skilning og samkennd án þess að stjórnandinn víki sér undan ábyrgð sinni. Skýr mörk, hreinskilin samskipti og snemmbær inngrip af hendi stjórnandans sem jafnframt gætir að eigin velferð og mörkum. 
- 04

Stígum inn strax

Forvarnir og snemmbær stuðningur er ein af helstu áherslum okkar hjá Mental ráðgjöf. Handleiðslan getur þannig verið bæði fyrir stjórannda sem stendur í erfiðu máli núna og þann sem vill verða öruggari í að grípa fyrr inn í og beita forvarnargefandi aðgerðum. 

Rými til að staldra við, spegla og undirbúa næstu skref

Við leggjum áherslu á mannlega nálgun án þess að missa sjónar á ábyrgð stjórnandans. Stundum þarf að hlusta. Stundum þarf að setja mörk. Stundum þarf að taka erfiða samtalið. Og stundum þarf stjórnandinn sjálfur einfaldlega rými til að hugsa upphátt með einhverjum sem þekkir þessar aðstæður.

Markmiðið er ekki að segja þér hvernig þú eigir að stjórna.
Markmiðið er að þú sért öruggari í því hvernig þú velur að stjórna.

Write your awesome label here.

Stjórnendahandleiðslan þín

  • Smelltu á hnappinn hér að neðan og bókaðu þína handleiðslu.
  • Hver handleiðsla er 50 mínútur.
  • Þú getur valið að hittast rafrænt, skrifstofu Mental eða bæði. 
  • Taktu skrefið núna - settu þig í fyrsta sæti.