Handbók stjórnenda í viðverustjórnun

Sjálfbærni vinnustaða í gegnum viðveru og velferð

Nældu þér í leiðarvísi fyrir stjórnendur er snýr að byggingu trausts, snemmtækri íhlutun, fyrirbyggjandi aðferðir og bestu aðferðum viðverustjórnunar í dag. 
Höfundur
Mental ráðgjöf
Tegund
Leiðarvísir
Gerð
PDF

Dýrmæt innsýn og hagnýt ráð

  • Fyrirbyggjandi samtöl og markviss innlit
  • Snemmtæk íhlutun þegar gulu flöggin birtast
  • Farsæl endurkoma til vinnu og aðrar gagnlegar aðferðir

Meginþættir leiðarvísis

01

Fjarvera er ekki orsök, hún er merki

Góð viðvera verður til þegar væntingar eru skýrar, stjórnun er gagnsæ og sálrænt öryggi ríkir á vinnustaðnum. Áherslan ætti að vera á stuðning fremur en afleiðingar fjarveru.

02

Regluleg „innlit“ eru lykilatriði í forvörnum

Kjarninn í árangursríkri stjórnun eru skipulögð og reglubundin samtöl (innlit) þar sem rætt er um líðan, álag og stuðningsþarfir. Mikilvægt er að halda þessum samtölum áfram jafnvel þegar mikið er að gera og nýta samtalsramma innlita.

03

Snemmtæk íhlutun og skýr hlutverkaskipting

Stjórnendur eiga að bregðast strax við merkjum um breytta hegðun eða endurtekin skammtímaveikindi í stað þess að bíða eftir að fjarvera nái ákveðnum viðmiðum. Hlutverk stjórnandans er að hlusta, styðja og fjarlægja hindranir, en ekki að vera sálfræðingur eða meðferðaraðili.

Náðu í þitt eintak strax í dag

Ekki missa af tækifærinu þínu til að ná í þitt eintak því leiðarvísirinn er einungis opinn í takmarkaðan tíma.