Tökum samtalið
Heilbrigð vinnustaðamenning gerist ekki af sjálfu sér
Hún verður til í samtölunum, í viðbrögðunum, í því sem við styrkjum og því sem við veljum að láta ekki viðgangast.
Hjá Mental vinnum við með vinnustöðum sem vilja hlúa markvisst að fólkinu sínu, styrkja stjórnendur og skapa vinnuumhverfi þar sem bæði fólk og starfsemi geta blómstrað.
Stundum byrjar það á einni vinnustofu.
Stundum á úttekt.
Stundum er þörf á lengra samstarfi.
Það fyrsta sem við þurfum að gera er einfaldlega að taka samtalið.
Stundum á úttekt.
Stundum er þörf á lengra samstarfi.
Það fyrsta sem við þurfum að gera er einfaldlega að taka samtalið.
Write your awesome label here.
Það sem hefur skipt mestu máli fyrir okkur í samstarfinu við Mental er að fá ekki bara ráðgjafa inn í einstök verkefni heldur manneskju sem verður í raun hluti af teyminu.
Með Mannauðsstjóra til leigu höfum við fengið faglegan stuðning í mannauðsmálum, bæði í daglegum úrlausnarefnum, stærri verkefnum og breytingum. Það skiptir miklu að geta leitað til aðila sem þekkir vinnustaðinn, menninguna og starfsfólkið og getur því sett málin hratt í samhengi og stutt stjórnendur við að taka næstu skref.
Fyrir okkur hefur þetta verið sveigjanleg og verðmæt leið til að efla mannauðsstarfið.
Gunnsteinn R. Ómarsson
Framkvæmdastjóri hjá Sameyki
Samfelldur stuðningur
Þegar eitt verkefni er ekki nóg
Sum verkefni leysast ekki með einni vinnustofu
Breytingar á menningu, samskiptum og líðan gerast sjaldnast á einum degi. Stundum þarf að halda samtalinu lifandi, fylgja verkefnum eftir og byggja markvisst ofan á það sem þegar hefur verið gert.
Samfella, markmið og eftirfylgni
Í lengra samstarfi mótum við skýrar áherslur og næstu skref með vinnustaðnum. Þannig verður til rauður þráður í vinnunni og verkefnin styðja hvert annað í stað þess að standa ein og sér.
Mannauðsstjóri til leigu
Faglegur mannauðsstuðningur án þess að ráða mannauðsstjóra í fullt starf. Ráðgjafi Mental kynnist starfseminni, verður hluti af teyminu og styður stjórnendur í bæði daglegum mannauðsmálum og stærri verkefnum.
Þjónustusamningur
Reglulegur aðgangur að ráðgjöfum Mental þegar þörfin kemur upp. Samstarfið getur falið í sér ráðgjöf við stjórnendur, stuðning í krefjandi málum, eftirfylgni og önnur verkefni sem þróast með starfseminni.
Getur óskað eftir samtali um þjónustusamning hér : Þjónustusamningur
Getur óskað eftir samtali um þjónustusamning hér : Þjónustusamningur
„Hjá Tryggingastofnun (TR) er lögð áhersla á jákvæða og uppbyggjandi vinnustaðamenningu til að ná góðum árangri og vellíðan í starfi.
Ég get sagt að vinnan fór langt fram úr okkar væntingum. Vinnan fólst í gerð viðbraðgsáætlunar um ógnandi samskipti viðskiptavina, fræðsluerindi um geðheilbrigði á vinnustað og handleiðslu til starfsfólks í framlínu.
Ég get eindregið mælt með Mental ráðgjöf og er þakklát fyrir þá vinnu sem við höfum farið í saman. Við náðum að setja skýr mörk í samskiptum og opna umræðuna um geðheilbrigði á vinnustað með þeirra ráðgjöf.”

Hólmfríður Erla Finnsdóttir
Mannauðsstjóri TR
Mannauðsstjóri TR
Write your awesome label here.