Sálræn fyrsta hjálp

Sálræn fyrsta hjálp er hagnýt nálgun sem kennir okkur einföld og áhrifarík viðbrögð þegar einstaklingar eru að ströggla. Hún snýst ekki um að vera sálfræðingur eða leysa vandann heldur um að vera til staðar hlusta og styðja.
Mar 9 / Hilja Guðmunds
Við getum öll lent í aðstæðum þar sem einhver í kringum okkur sýnir merki um vanlíðan, streitu eða áfall. Þá getur verið erfitt að vita hvað við eigum að gera eða segja og ótti við að gera mistök veldur því að margir segja ekki neitt. 

Sálræn fyrsta hjálp er hagnýt nálgun sem kennir okkur einföld og áhrifarík viðbrögð þegar einstaklingar eru að ströggla. Hún snýst ekki um að vera sálfræðingur eða leysa vandann heldur um að vera til staðar hlusta og styðja. 

Í (gulum) september síðastliðnum buðum við hjá Mental ráðgjöf upp á opið örerindi um sálræna fyrstu hjálp. Í janúar deildum við með ykkur Uppskrift að góðri geðheilsu og nú viljum við deila með ykkur þessu góða örerindi og gera það opið öllum þeim sem vilja fá innsýn inn í hvað sálræn fyrsta hjálp felur í sér og af hverju hún skiptir máli. 

Þú færð innsýn í:
  • hvernig við getum nálgast samtal á öruggan og mannlegan hátt
  • hagnýt skref sem hver og einn getur tekið til að veita stuðning í raunverulegum aðstæðum
  • hvatningu til að taka samtalið við þann/þau sem sýna einkenni vanlíðanar
Þetta erindi er fyrir alla sem vilja öðlast aukið öryggi í samskiptum þegar kemur að viðkvæmum aðstæðum og taka þátt í að skapa vinnuumhverfi þar sem fólk finnur fyrir stuðningi og öryggi.

Athugið að hægt er að stilla á íslenskan eða enskan texta fyrir þau sem það kjósa. 
Write your awesome label here.

Ert þú vinnustaður sem vilt huga að sjálfbærni mannauðs, aukinni vellíðan og viðveru?

Smelltu þá á hlekkinn hér að neðan og bókaðu fund með ráðgjafa.
Engin skuldbinding - bara spjall 💬