Viðverustjórnun

Frá forvörnum til endurkomu

Þetta svæði er í tengslum við námskeiðið/vinnustofuna Viðverustjórnun: Frá forvörnum til endurkomu.

Hér að neðan má finna þau skjöl sem nýtt voru á námskeiðinu og annað stuðningsefni. 

Viðverustjórnun

Heildstæð viðveru- og velferðarstjórnun byggir á sannreyndum aðferðum er styðja við velferð og vellíðan starfsfólks á vinnustað.

Forvarnir

Markviss samtöl (t.d. innlit, nýliðasamtöl o.fl.), stefnur, viðbragðsáætlanir, þjálfun og fræðsla. 

Viðbrögð

Velferðar- og viðverusamtöl, hugrökk samtöl, hlutaveikindi, veikindaleyfi, samtöl í veikindaleyfum og endurkoma (sem fer svo yfir í forvarnir).

Stjórnendur eru í lykilhlutverki í heildstæðri viðverustjórnun

Smelltu á myndirnar Viðverustjórnun 
og Stjórnendataktur til að næla þér í leiðbeinandi skjöl er tengjast bæði viðverustjórnun og samtalstakti. 
Neðar má svo finna skjöl er voru nýtt á vinnustofu sem og önnur aukaskjöl sem nýtast í starfi. 

Innlit

Hér má finna samtalsramma innlita og aukaspurningar til að nýta sér vilji til þess. 

Hugrökk samtöl 

Hugrökk samtöl þarfnast undirbúnings og mikilvægt er að vera með skýran tilgang. Hér má finna bæði ramma og handrit fyrir slík samtöl sem og undirbúningsblað til að styðjast við. 

Sálræn fyrsta hjálp

Sálræn fyrsta hjálp er lykilþáttur í því að byggja upp örugga, styðjandi og heilbrigða vinnustaðamenningu.  Hér má finna nokkur stuðningsskjöl henni tengdri. 

Velferðar- / viðverusamtal

Við sumar aðstæður er mikilvægt að taka velferðar- / viðverusamtal. Samtölin geta farið fram af margvíslegum ástæðum. Hér má finna bæði leiðarljós (leiðbeiningar) stjórnanda og samtalsramma samtalsins. 

Samskipti í langtímaleyfum

Mikilvægt er að halda tengslum og hafa reglulegt samband við starfsfólk í langtímaleyfum með umhyggju að leiðarljósi.

Virk samskipti stuðla að bæði líklegri og betri árangri í endurkomu til vinnu.

Endurkoma til vinnu

Eftir samfellda fjarveru í mánuð eða lengur vegna veikinda, fæðingarorlofs eða launalauss leyfis er undirbúið endurkomusamtal til að fara yfir aðstæður, breytingar á vinnustað og þörf fyrir aðlögun.  

Mikilvægt er að opna samtalið á viðeigandi hátt, skv. leiðarljósum stjórnanda í endurkomusamtali, áður en farið er í samtalið sjálft.